Vinir Ragga Bjarna komu í Ás
Vinir Ragga Bjarna komu nýlega og skemmtu heimilisfólki og starfsfólki í Ási og það er óhætt að segja að það hafi verið við mikinn fögnuð viðstaddra. Ánægja og gleði skein úr hverju andliti og það voru margir sem sungu með hástöfum...
lesa meira
Börnin frá Steinahlíð skreyttu með heimilisfólki
Það voru margar litlar hendur sem aðstoðuðu heimilisfólk við að skreyta jólatréð í matsal Markar í morgun. ...
lesa meira
Jólin koma
Það fer ekki framhjá neinum sem á leið um Grund að það er komin aðventa og styttist í jólin. Hér er verið að skreyta jólatré í setustofunni á þriðju hæðinni....
lesa meira
Á annað þúsund rjómapönnukökur
Það hefur skapast sú hefð á Grundarheimilunum að bjóða upp á hangikjöt með tilheyrandi meðlæti þann 1. desember og bjóða upp á rjómapönnukökur í eftirmat. Og þá er ekkert annað að gera en að bretta upp ermar eins og þær Rakel og Chutima gerðu og baka á sjö pönnum á annað þúsund pönnukökur. Geri aðrir betur. ...
lesa meira
Jólaglögg fyrir íbúa 60+
Vöfflukaffi íbúa 60+ var með öðrum hætti síðasta mánudag. Vöfflurnar fengu smá pásu en í staðinn var boðið upp á jólaglögg, smákökur og konfekt. Við áttum góða samverustund, horfðum og hlustuðum á Jólagesti Björgvins á tjaldinu og komum okkur í jólagírinn. ...
lesa meira
Kynslóðir mætast við undirbúning jólanna
Jólasöngvar, sögur, hlátur, gleði og föndur. Þannig var andrúmsloftið á Litlu Grund þegar börn úr 5. bekk í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi komu í heimsókn í morgun. ...
lesa meira
Rauður dagur í Mörk 60+
Hér í Mörk var tekið fagnandi á móti desember. Föstudaginn 1. desember voru allir hvattir til að klæðast einhverju rauðu og í hádeginu var boðið upp á hangikjöt og meðlæti og í eftirrétt voru pönnukökur með rjóma. Vertu velkominn desember. ...
lesa meira
Karlakór Hveragerðisbæjar í heimsókn
Karlakór Hveragerðisbæjar gladdi okkur með frábærum tónleikum. Ekki amalegt að fá svona heimsókn. Þakka ykkur innilega fyrir komuna og frábæran söng. Guðrún Kristjánsdóttir heimilskona í Bæjarási var afskaplega stolt af syni sínum honum Höskuldi sem syngur með kórnum....
lesa meira
Aðventan undirbúin
Fyrsti sunnudagur í aðventu er í dag en heimilisfólk og starfsfólk í Ási hefur verið önnum kafið við að útbúa aðventukransa og aðventudagatöl undanfarna daga. Það eru ljúfar stundir framundan hjá okkur á aðventunni....
lesa meira
Seríur og kransar komnir upp
Í nóvember byrjuðum við í Mörk að undirbúa jólin. Húsvörðurinn setti upp seríu á tréð við húsið í bílastæðaportinu og ræstingin hengdi upp jólakransa með seríum á göngum. Það þarf ekki mikið til að fá hlýleika og birtu þegar dimmt er úti. Nú er desember að ganga í garð og þá munu jólatré vera sett upp og meira jólaskraut. ...
lesa meira